Bandaríski leikarinn Ryan Gosling er nú staddur á Keflavíkurflugvelli. Hann kom með flugvél frá Delta til Íslands í morgun.
Samkvæmt heimildum mbl.is var Gosling fylgt í gegnum flugvöllinn af starfsmanni Delta-flugfélagsins. Heimildarmaður mbl.is segir að leikarinn hafi verið með þrjár töskur og hversdagslega klæddur. Hann er einn á ferð.
Kærasta Goslings er leikkonan Eva Mendez.