Lýst eftir Karen Björk

Karen Björk Einarsdóttir.
Karen Björk Einarsdóttir.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar að Karen Björk Einarsdóttur. Karen er 28 ára og svipt sjálfræði. Hún strauk frá geðdeild föstudagskvöldið 7. júlí.

Ekkert hefur heyrst til hennar síðan. Karen Björk er áberandi grönn, lávaxin, stuttklippt og skolhærð. Klædd í dökkar íþróttabuxur, gráa hettupeysu með mynd af kind, í svörtu vesti og með rauða húfu. Þeir sem vita um ferðir Karenar Bjarkar frá því á föstudagskvöld eru beðnir um að láta lögregluna vita í síma 444-1000.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert