Lögreglan á Selfossi leitaði í dag manns í Árnessýslu. Mannsins var leitað í tengslum við lögreglurannsókn í Reykjavík vegna brota á almennum hegningarlögum. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er maðurinn ekki hættulegur almenningi.
Mikill fjöldi lögreglumanna leitaði mannsins, auk þess sem þyrla Landhelgisgæslunnar tók þátt í leitinni. Leit er hætt, en maðurinn er ófundinn.
Lögreglan vildi ekki tjá sig frekar um málið.
Mbl.is hefur eftir heimildum að bílar hafi verið stöðvaðir við Kerið í dag, þar sem mannsins var á einhverjum tímapunkti leitað.
Þá segja sjónarvottar að þrír lögreglubílar, sjúkrabíll og þyrla Landhelgisgæslunnar hafi verið við Laugarvatn í dag. Þar hafi lögreglumenn stöðvað alla bíla og leitað í þeim hátt og lágt.
Tveir handteknir við Laugarvatn