Hengill Ultra á laugardag

Hengilssvæðið
Hengilssvæðið mbl.is/Rax

Hengill Ultra-hlaupið verður haldið í fyrsta skipti á laugardag. Um er að ræða 50 km utanvegahlaup á Hengilssvæðinu en hlaupaleiðin er alls 50 mílur eða 81 km. 20 hlauparar eru skráðir til leiks.

„Það er óneitanlega komin mikil spenna í mannskapinn enda er þetta í fyrsta skipti sem hlaupið fer fram og ljóst að þetta verður mikil þolraun fyrir keppendur. Þetta er ein af fallegri hlaupaleiðum landsins ef ekki sú fallegasta,“ segir Pétur Ingi Frantzson, hlaupari sem er í forsvari fyrir Hengil Ulta, í fréttatilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert