Kominn í öndunarvél eftir umferðarslysið

Landspítali.
Landspítali. Þorvaldur Örn Kristmundsson

Karlmaður sem slasaðist í alvarlegu bílslysi í gær er kominn í öndunarvél. Reyndist hann alvarlegar slasaður en í fyrstu var talið. Þessar upplýsingar fengust frá lækni á gjörgæslu Landspítalans.

Kona sem einnig var í bílnum er hins vegar að öllum líkindum á leið af gjörgæslu.

Enn er ekki vitað með vissu hvað olli slysinu, en talið er að ökumaður hafi misst stjórn á bifreið sinni með þeim afleiðingum að tveir köstuðust út úr bifreiðinni. Tvær stúlkur á unglingsaldri létust í slysinu. Fjórir voru í bifreiðinni.

Sjá einnig: Banaslys á Suðurlandi

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert