Maður var handtekinn klukkan kortér yfir þrjú í nótt eftir að hann kveikti eld við Alþingishúsið. Að sögn lögreglu sagðist maðurinn hafa ætlað að kveikja í sjálfum sér. Búið var að slökkva eldinn þegar slökkvilið kom á vettvang.
Hann var í annarlegu ástandi og var hann vistaður í fangageymslu meðan ástand hans lagast.