Neydd til munnmaka í Herjólfsdal

Ljósmynd/Kristinn Freyr Jörundsson

Skömmu eftir miðnætti  í dag var maður handtekinn í Herjólfsdal eftir að tvítug stúlka kærði hann fyrir að hafa neytt sig til munnmaka.

Var maðurinn, sem er fertugur, vistaður í fangageymslu og verður fluttur á Selfoss eftir hádegi í dag til frekari skýrslutöku.  Vitni verða og yfirheyrð í málinu í dag.

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert