Ökumaður bílsins sem fór út af Suðurlandsvegi skammt austan við afleggjarann að Meðallandsvegi er enn í öndunarvél. Vakthafandi læknir sagði líðan hans stöðuga og ekki sé hægt að spá fyrir um framhaldið.
Tvær stúlkur, 15 og 16 ára, létust í slysinu. Talið er að þær hafi ekki verið í bílbeltum þegar slysið varð.