Gæsluvarðhald yfir Stefáni Loga framlengt

Stefán Logi Sívarsson leiddur fyrir dómara
Stefán Logi Sívarsson leiddur fyrir dómara

Gæsluvarðhald yfir Stefáni Loga Sívarssyni hefur verið framlengt um fjórar vikur á grundvelli almannahagsmuna að sögn Jóns H.B. Snorrasonar hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Segir hann að með þessu sé miðað við að Stefán gangi ekki frjáls ferða sinna þar til mál hans kemur fyrir dómstóla.

Stefán Logi var dæmdur í tveggja vikna gæsluvarðhald þann 13. júlí. Það gæsluvarðhald var svo framlengt um tvær vikur og hefur nú verið framlengt að nýju um fjórar vikur.

Stefán Logi og fjórir menn til viðbótar eru grunaðir um að eiga aðild að minnst þremur alvarlegum líkamsárásum.

Er hann ásamt öðrum meðal annars grunaður um að hafa svipt manni frelsi sínu í Reykjavík og pyntað hann áður en ekið var með hann á Stokkseyri þar sem honum var misþyrmt í íbúðarhúsi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert