Halda Akureyrarvöku þrátt fyrir veðurhorfur

Frá tónleikum í Gilinu á Akureyrarvöku í fyrra
Frá tónleikum í Gilinu á Akureyrarvöku í fyrra

Akureyrarvaka verður haldin um næstu helgi og verður sett með dagskrá í Lystigarðinum á föstudagskvöld undir yfirskriftinni Rökkurró. Veðurspáin fyrir næstu helgi er ekki eins og best verður á kosið en aðstandendur hátíðarinnar ætla ekki að láta það á sig fá.

Ef til vill verða einhverjir viðburðir færðir um set og hafðir innandyra ef veður verður til óþæginda. Spáð er fremur köldu og vætusömu veðri en stilltu og eiga menn von á að dagskrá hátíðarinnar haldist að mestu óbreytt, samkvæmt tilkynningu frá Akureyrarbæ.

„Hápunktur Akureyrarvöku verður á laugardag þegar efnt verður til litríkrar listaveislu með alþjóðlegum blæ á Ráðhústorgi, í Listagilinu og víðar um bæinn. Dagskrá laugardagsins lýkur með útitónleikum hljómsveitarinnar Retro Stefson og gesta á risasviði neðst í Listagilinu kl. 21.00. Yfirskrift tónleikanna er Retro Stefson Karnival. Hljómsveitin vinsæla flytur þar eigin lög en klæðir einnig alkunna smelli frá fyrri tíma í "Retro Stefson búning" og fær í því skyni til liðs við sig m.a. söngvarana Pálma Gunnarsson og Helenu Eyjólfsdóttur.

Aðrir hápunktar dagsins eru Vísindasetur í Rósenborg þar sem ýmsar furður verða kynntar ásamt því að sérfræðingar útskýra sprengingar í Vaðlaheiðargöngum. Boðið verður upp á forvitnilega eldhúsrétti frá fjölda þjóðlanda í Menningarhúsinu Hofi. Þar verða einnig kynntir barnaleikir frá öllum heimshornum. Listagilið verður iðandi af lífi allan laugardaginn með tónlist, listsýningum, matarmarkaði, listmálurum að störfum og fleiru,“ segir í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert