Fengu frí til að fara í göngur

Smalað á fjórhjóli.
Smalað á fjórhjóli. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Margir nemendur Verkmenntaskólans á Akureyri, VMA, fyrst og fremst þeir sem búa í sveitum á Norðurlandi, hafa fengið leyfi frá skólayfirvöldum til þess að fara til síns heima og taka þátt í að smala afréttarlönd en göngum hefur víðast hvar verið flýtt á Norðurlandi vegna slæmrar veðurspár. Á sumum svæðum hófust göngur í gær, á öðrum svæðum fara gangnamenn af stað í dag og enn öðrum svæðum verður smalað á morgun. Þetta kemur fram á vef vikublaðsins Akureyri,

„Við höfum fúslega veitt þeim nemendum sem þess óska leyfi til þess að fara heim og taka þátt í göngum. Það er meira en sjálfsagt mál þegar svona stendur á. Þetta er kapphlaup við tímann og því er mikilvægt að allir geti lagt sitt af mörkum,“ segir Sigríður Huld Jónsdóttir, aðstoðarskólameistari VMA. Hún segir að flestir þessara nemenda hafi í gær óskað eftir leyfi til þess að fara heim í göngur og hún viti til þess að sumir fari strax í dag í göngur en aðrir á morgun, fimmtudag. Þá hafi nokkrir starfsmenn skólans sömuleiðis fengið leyfi til þess að fara í göngur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert