Hvalurinn víðar en í Rifi

Grindhvalir í höfninni í Rifi
Grindhvalir í höfninni í Rifi mbl.is/Alfons Finnsson

Svo virðist sem grindhvalavaðan hafi komið víðar að landi en í Rifi á Snæfellsnesi og á Harða kambi, sem er fjaran milli Rifshafnar og Ólafsvíkurennis því einnig kom hópur að landi á Fróðárrifi.

Enn er ekki vitað hvers vegna hvalirnir syntu að landi á norðanverðu Snæfellsnesi í gær né heldur hversu margir þeir eru. Er talað um allt frá nokkrum tugum upp í á þriðja hundrað.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert