Það voru margir sem tóku þátt í að gera að grindhval sem synti á land í fjörunni við Bug skammt frá Ólafsvík. Talið er að um 20 hvalir hafi drepist í fjörunni. Talsvert drapst líka við Rif.
Margir lögðu leið sína í fjöruna til þess að taka þátt í veislunni og ná sér í góðan matarbita.