Rætt um að auka loftrýmisgæslu

Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra og Knud Bartels, hershöfðingi og formaður hermálanefndar Atlantshafsbandalagsins, ræddu í gær um að auka við loftrýmisgæslu erlendra  NATO ríkja við Íslands.

Bartel er staddur hér á landi í heimsókn og hélt meðal annars erindi á fundi á vegum Háskóla Íslands í gær.

Á fundinum ræddu þeir framtíðarþróun bandalagsins, Mið-Austurlönd, loftrýmiseftirlit á Ísland, netöryggi og öryggismál á norðurslóðum, samkvæmt tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu.

Utanríkisráðherra lýsti yfir ánægju með framkvæmd loftrýmisgæslu bandalagsríkja á Íslandi sem hefur staðið yfir í fimm ár.  Á þessu tímabili hafa átta bandalagsþjóðir tekið þátt í sextán vöktum.  

Á fundinum var rætt um fjölga vöktum úr þremur í fjórar í samræmi við upphaflega ákvörðun NATO. Gunnar Bragi sagði þátttöku Svíþjóðar og Finnlands í loftrýmiseftirliti í febrúar á næsta ári vera mikilvægan áfanga í norrænu varnarsamstarfi .

Ráðherra lagði áherslu á jafnréttismál í störfum bandalagsins

„Ráðherra lagði áherslu á mikilvægi jafnréttismála í störfum bandalagsins og þá sérstaklega að það framfylgdi í verki ályktunum öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um konur, frið og öryggi. Aukið vægi netöryggismála var einnig til umræðu, en nú er í undirbúningi þátttaka Íslands í störfum netöryggisseturs NATO í Eistlandi. Bartels þakkaði Íslendingum fyrir framlag til verkefna á vegum bandalagsins þ.á.m. störf borgaralegra sérfræðinga í Afganistan og áður í Kósóvó. Þá lýsti hann ánægju með fyrirkomulag loftrýmiseftirlits á Íslandi.

Knud Bartels hélt einnig fyrirlestur um núverandi og framtíðarverkefni NATO í Norræna húsinu sem var vel sóttur. Þá fundaði hann með utanríkismálanefnd Alþingis og heimsótti landhelgisgæsluna, Hann bar lof á störf gæslunnar og þá ekki síst hina nýju aðgerðamiðstöð þeirra,“ segir ennfremur í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka