Á hverju ára greinast að meðaltali 700 íslenskar konur með krabbamein. Árvekniátak- og fjáröflunarátak Krabbameinsfélagsins, Bleika slaufan, hefst á morgun. Þökk sé fé sem safnast hefur síðustu ár verður á næstunni hægt að taka upp nýja aðferð um allt land við grein á leghálskrabbameinum.
Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra tók við fyrstu bleiku slaufunni í Hörpu í dag.
Bleika slaufan og bleikur október eru alþjóðlegt fyrirbæri sem flest Krabbameinsfélög heims standa fyrir. Slaufan er tákn Krabbameinsfélagins í baráttunni gegn krabbameini í konum. Átakið hófst fyrir 12 árum síðan og hefur stækkað jafnt og þétt síðan.
Ragnheiður Haraldsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélags Íslands, sagði við afhendingu fyrstu bleiku slaufunnar í dag að það væri ómetanlegt hve margir taki árlega þátt í átakinu. „Þessi almenna þátttaka er birtingarmynd um samstöðu meðal þjóðarinnar um mikilvægt verkefni og hún varpar ljósi á hvernið við Íslendingar erum reiðubúin að leggja hvert öðru lið.“
Í ár verður átakið með nýstárlegum hætti því meðfram sölu á slaufunni verður vakin athygli á málstaðnum með uppboði í „bleika herberginu“ á bleikaslaufan.is. Þar verður hægt að bjóða í ýmsa og óvænta hluti og viðburði, á hverjum degi í 10 daga frá 2. til 11. október.
Það fé sem safnast við sölu á bleiku slaufunni og í bleikum október er Krabbameinsfélaginu afar mikilvægt til að halda uppi verkefnum. Ragnheiður benti á að undanfarin ár hafi félagið getað staðið við loforð um að setja til hliðar fjármagn til að kosta nauðsynlegar framfarir í leit að leghálskrabbameinum.
„Vegna þess munum við á næstunni geta tekið upp nýja aðferð um allt land til greiningar á leghálskrabbameinum, sem er öruggari og betri en núverandi tækni,“ sagði Ragnheiður. „Þessi tækni mun svo gera okkur kleift að gera greinarmun á þeim hópi kvenna sem eru í meiri áhættu og þurfa að koma oft og reglulega til leitar að krabbameinum og forstigum þeirra, og hinum, sem ekki hafa þörf fyrir að koma jafn oft og jafnvel ekki.“