Maðurinn sem lést í bílveltu í Kelduhverfi austan Húsavíkur aðfararnótt laugardags hét Sveinn Björnsson og var 33 ára að aldri.
Hann var búsettur í Árdal í Kelduhverfi. Hann lætur eftir sig tvö börn.
Sveinn var einn á ferð er slysið varð en mikil hálka var á vegum.