Sigrúnu boðið starf sviðsforseta

Sigrún Stefánsdóttir
Sigrún Stefánsdóttir mbl.is/Guðmundur Rúnar Guðmundsson

Stefán B. Sigurðsson rektor hefur boðið umsækjandanum Sigrúnu Stefánsdóttur starf sviðsforseta hug- og félagsvísindasviðs við Háskólann á Akureyri. Sigrún er ein af sex aðilum sem sóttu um starfið og kemur sterkust út í niðurstöðu dómnefndar og einnig í skýrslu Capacent en ekki náðist fram meirihlutaálit sviðsins í kosningu á sviðsforseta.

„Sigrún hefur mikla og samfellda kennslureynslu úr háskóla, hún er með dósentshæfi og hefur því mest akademískt hæfi umsækjenda. Hún þekkir vel til flestra þátta sem eru undirstaða góðrar háskólakennslu hvort sem er í staðar- eða fjarnámi. 

Sigrún hefur doktorspróf í fagi sem kennt er við HA og hefur reynslu af störfum tengdum viðfangsefnum á fræðasviðinu. Sigrún hefur að mati dómnefndar áberandi mesta reynslu af stjórnun og rekstri í háskólastarfi. Hún hefur einnig jafngóða eða meiri reynslu en aðrir umsækjendur í leiðtoga- og stjórnunarhlutverki tengdu háskólastarfsemi. 

Í umsókn og í viðtölum kemur fram skýr framtíðarsýn hennar varðandi starfið,“ segir í tilkynningu frá Háskólanum á Akureyri.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert