Áhöfn flutningaskipsins Fernanda átti aldrei neinn möguleika á að ráða niðurlögum eldsins sem kom upp í vélarrúmi skipsins. Skipið er mjög mikið skemmt og líklega ónýtt.
Varðskipið Þór er á leiðinni á staðinn með slökkviliðsmenn frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. Áætlað er að skipið verði komið á staðinn síðar í kvöld.
Lóðsinn í Vestmannaeyjum er á staðnum og sprautar sjó yfir eldinn sem virðist vera í rénun. Varðskipið Þór mun taka við aðgerðum á vettvangi þegar komið verður á staðinn í kvöld. Landhelgisgæslan mun síðan meta stöðuna að nýju í fyrramálið með Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins og öðrum viðbragðsaðilum.
Aðgerðir hafa gengið í alla staði mjög vel og mjög góð samvinna hefur verið milli allra viðbragðsaðila en Samhæfingarstöð almannavarna í Skógarhlíð var virkjuð meðan aðgerðir stóðu yfir.
Varðskipið Þór er búið öflugum slökkvibúnaði sem sérstaklega er ætlað að sinna slökkvistörfum á sjó.
Fernanda er 75 metra langt skip og um 2.500 brúttótonn. Skipið er skráð í Dóminíska lýðveldinu og var byggt árið 1981