Enn logar í skipinu Fernöndu sem varðskipið Þór er með í togi úti á Faxaflóa. Mikill hiti er í skipuna en eldur hefur logað í því í marga daga. Er þess beðið að það kólni. Ekki hefur enn verið ákveðið hvað verður gert við skipið en möguleiki er á því að það sökkvi eða að því verði sökkt.
Skipin eru fjarri hrygningarstofnum og veiðisvæðum samkvæmt upplýsingum Hafrannsóknarstofnunar. Þá er allnokkuð dýpi á þessum slóðum.
„Varðskipið Þór er enn með flutningaskipið Fernanda á sömu slóðum og í gærkvöldi þ.e vestur af Faxaflóa en telst það svæði samkvæmt upplýsingum frá Hafrannsóknarstofnun fjarri hrygningarstofnum og veiðisvæðum.
Enn er mikill hiti í síðum skipsins og sprautar varðskipið Þór á skipið eftir því sem aðstæður leyfa. Leitast er við að halda skipinu á floti og forða því að eldur komist í aðalolíutanka skipsins. Þannig miðast allar aðgerðir við að draga úr hættu á mengun og um leið tryggja sem best öryggi á vettvangi.
Áætlað er að þyrla Landhelgisgæslunnar fari á vettvang eftir hádegi til aðstoðar. Verður aðgerðum haldið áfram fram eftir degi og staðan endurmetin ef breyting verður á,“ segir í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni.
Sjá einnig: Halda siglingu áfram