Fara um borð í Fernöndu

Varðskipið Þór slekkur eld í flutningaskipinu Fernanda.
Varðskipið Þór slekkur eld í flutningaskipinu Fernanda. Ljósmynd/Landhelgisgæslan

Slökkviliðsmenn munu fljótlega fara um borð í flutningaskipið Fernöndu til nákvæmari skoðunar þar sem kannað verður ástand þess og gengið úr skugga um að enginn eldur sé til staðar. Varðskipið Þór er enn með skipið í togi á Faxaflóa.

Fyrir skömmu lauk öðrum samráðsfundi aðila sem hafa komið að mati og ákvörðunum varðandi framvindu mála vegna eldsvoðans um borð í flutningaskipinu en þeir eru fulltrúar Landhelgisgæslunnar, Umhverfisstofnunar, Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins, Hafrannsóknarstofnunar, Samgöngustofu, hafnaryfirvalda Faxaflóahafna og Hafnarfjarðarhafnar, lögreglu, eigenda skipsins og tryggingafélags.  

Að sögn áhafnar varðskipsins Þórs og slökkviliðsmanna eru ágætar aðstæður á staðnum núna, segir í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni. 

Þegar slökkviliðsmenn fara um borð í Fernöndu verður vandlega farið yfir öryggissjónarmið viðbragðsaðila en gert er ráð fyrir að framkvæmdin taki nokkrar klukkustundir. 

Í framhaldinu verður tekin ákvörðun um hvort óhætt verður að halda með skipið til hafnar þar sem mögulegt verður að dæla úr því olíu og undirbúa skipið fyrir  niðurrif.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert