Vegir eru að mestu greiðfærir um sunnanvert landið samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni, allt frá Faxaflóa austur fyrir Djúpavog. Þó eru hálkublettir á fáeinum vegum, s.s. á Mosfellsheiði og á kafla vestan Kirkjubæjarklausturs.
Hálka eða hálkublettir eru nú víða á vegum á Vesturlandi. Óveður er undir Hafnarfjalli. Það er hálka eða hálkublettir allvíða á Vestfjörðum, einkum á heiðum og hálsum. Þoka er einnig á Steingrímsfjarðarheiði.
Á Norðurlandi vestra eru hálkublettir mjög víða en hálka á Þverárfjalli, í Langadal og á Vatnsskarði. Norðaustanlands er hálka á flestum vegum en þæfingsfærð á Dettifossvegi. Á Austurlandi er víðast hvar hálka eða snjóþekja en að mestu autt með ströndinni.
Sjá nánar um veðurhorfur á veðurvef mbl.is.
Frétt mbl.is: Spáð stormi á landinu í dag