Lögreglan á Selfossi óskaði eftir því í gærkvöldi að tveir karlmenn, sem voru handteknir við Reykjaskóg í Bláskógabyggð í fyrrakvöld, yrðu úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Dómari tók sér frest fram yfir hádegi til þess að kveða upp úrskurð.
Á vef lögreglunnar kemur fram að krafan byggist á því að um síbrotamenn sé að ræða.
Til rannsóknar er meiri háttar líkamsárás og innbrot í sjö sumarbústaði í Bláskógabyggð í nóvember. Í öllum innbrotunum var flatskjám stolið ásamt ýmiss konar rafmagnstækjum og öðrum munum.
Gefin hefur verið út ákæra á annan manninn vegna á annan tug auðgunarbrota sem hann er sakaður um að hafa framið síðastliðið sumar og í haust. Það er mat lögreglu að brýnt sé að taka manninn úr umferð til að stöðva brotaferil hans. Dómari tók sér frest fram yfir hádegi í dag til að ákveða hvort mennirnir skuli sæta gæsluvarðhaldi eða ekki, segir í tilkynningu frá lögreglunni á Selfossi.