Alþýðusamband Íslands segir Samtök atvinnulífsins setja fram dæmalausa sögufölsun í nýjum sjónvarpsauglýsingum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ASÍ.
„Í þeim er með sérlega ósmekklegum hætti látið í það skína að kröfur launafólks um launahækkanir séu ástæða hárrar verðbólgu á Íslandi. Samtök atvinnulífsins skauta algerlega framhjá þeirri augljósu staðreynd að hér á landi er í umferð veikur gjaldmiðill sem fellur reglulega með braki og brestum svo ekki sé talað um hrun krónunnar fyrir 5 árum. SA veit að endurteknar gengisfellingar hafa áhrif á afkomu launafólks sem þarf að mæta þeim með hærri launakröfum. Ef SA menn hefðu nálgast málið af heiðarleika og reiknað inn í dæmið sveiflur gjaldmiðilsins sæju þeir að launahækkanir á Íslandi eru á pari við það sem gerist á Norðurlöndunum. Þá forðast Samtök atvinnulífsins að nefna þá staðreynd að laun sem hlutfall af landsframleiðslu eru umtalsver lægri hér en á hinum Norðurlöndunum.
Þetta sérkennilga útspil SA er afar óheppilegt innlegg í þær kjaraviðræður sem nú eru nýlega hafnar og ekki líklegt til þess að byggja upp traust milli aðila. Falsanir og útúrsnúningar eru ekki heppilegt veganesti í þá vegferð sem framundan er,“ segir í tilkynningu frá ASÍ.
Bætt við fréttina klukkan 12:46
VR tekur undir gagnrýni ASÍ
„VR tekur undir athugasemdir Alþýðusambandsins við nýjar sjónvarpsauglýsingar Samtaka atvinnulífsins þar sem látið er í það skína að kröfur launafólks um launahækkanir séu ástæða hárrar verðbólgu hér á landi. ASÍ segir í fréttatilkynningu að atvinnurekendur setji fram sögufölsun í þessum auglýsingum og segir jafnframt ... „Þetta sérkennilega útspil SA er afar óheppilegt innlegg í þær kjaraviðræður sem nú eru nýlega hafnar og ekki líklegt til þess að byggja upp traust milli aðila. Falsanir og útúrsnúningar eru ekki heppilegt veganesti í þá vegferð sem framundan er.“