Íslendingur lést í bílslysi í Taílandi

mbl.is

Íslenskur karlmaður á miðjum aldri lét lífið í bílslysi í Taílandi um síðustu helgi. Maðurinn var á ferð með erlendri konu sem slasaðist.

Borgaraþjónusta utanríkisráðuneytisins hefur haft aðkomu að málinu og verið í sambandi við aðstandendur, samkvæmt frétt Morgunblaðsins.

Ekki er hægt að greina frá nafni hins látna að svo stöddu.

Þá er ekki hægt að greina frá því hvar slysið varð, né fengust upplýsingar um líðan konunnar sem var með manninum í bílnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert