Í aðgerðum lögreglunnar við fjölbýlishúsið í Hraunbæ í gær þar sem maður vopnaður byssu hélt sig, var gassprengjum skotið inn um tvo glugga íbúðar mannsins. Rúður brotnuðu bæði í svefnherbergi mannsins og eldhúsi samkvæmt meðfylgjandi teikningu. Sérsveitarmenn skutu síðar manninn og lést hann af sárum sínum á sjúkrahúsi skömmu síðar.
Einn nágranni mannsins lýsti því fyrir mbl.is í gær á meðan umsátri lögreglu stóð yfir, að hann sæi manninn liggja uppi í rúmi svefnherbergisins með byssuna. Sá nágranninn hlaup hennar vel.
Ástæða þess að lögreglan skaut gassprengjum inn í íbúðina var sú að hún taldi að íbúar í nágrenninu og lögreglumenn væru í hættu og gerði því tilraun til þess að yfirbuga manninn með þessari aðgerð.
Hér má sjá atburðarás málsins í fyrrinótt:
Um kl. hálf eitt:
- Nágranni manns í íbúð við Hraunbæ vaknar við gelt í hundi sínum og tengir það við að fyrsta skotinu hafi verið hleypt af.
Um kl. 3:
- Lögreglu tilkynnt um háværa hvelli frá íbúðinni.
- Almennir lögreglumenn sendir á staðinn til að kanna málið. Sérsveitarmenn eru þeim til aðstoðar.
- Lögreglan opnar hurðina inn í íbúð mannsins þegar hann svarar þeim ekki.
- Maðurinn skýtur með haglabyssu á sérsveitarmenn sem ætluðu að kalla inn í íbúðina. Skotið lendir í skildi sérsveitarmanns sem kastast aftur á bak og niður stiga og rotast.
Um kl. 5:
- Lögregla dregur sig til baka og kallar eftir liðsstyrk.
- Íbúðir í stigaganginum rýmdar.
- Sjúkrabílar kallaðir á vettvang.
Um kl. 6:
- Enn næst ekki samband við manninn.
- Lögreglan reynir að yfirbuga hann með því að skjóta gashylkjum inn um glugga íbúðarinnar.
- Maðurinn skýtur margsinnis út um glugga.
- Sérsveitarmenn fara inn.
- Maðurinn skýtur nokkrum skotum að þeim. Hittir í hjálmklætt höfuð sérsveitarmanns.
- Sérsveitarmenn skjóta manninn og særa.
- Lögreglumenn hefja lífsbjargandi aðgerðir og bráðatæknar úr sjúkrabílum eru kallaðir til.
- Maðurinn fluttur á sjúkrahús þar sem hann er úrskurðaður látinn.
Um kl. 7:
- Aðgerðum lögreglu lokið.
- Ríkissaksóknari tekur við rannsókn málsins.
Tvær brotnar rúður í íbúð mannsins.
mbl.is/Rósa Braga