Umsátur á Sauðárkróki

Umsátur í Hásæti á Sauðárkróki.
Umsátur í Hásæti á Sauðárkróki. Ljósmynd/Feykir.is

Lögregla hefur umkringt hús við götuna Hásæti á Sauðárkróki og rýmt nærliggjandi hús. Engar upplýsingar fást frá lögreglu en að sögn sjónarvotta eru lögreglumenn frá bæði Sauðárkróki og Akureyri á vettvangi. Ekki hefur fengist staðfest að sérsveitin sé mætt en heimildir mbl.is herma að svo sé.

Samkvæmt heimildum mbl.is á íbúi hússins við geðræn vandamál að stríða. 

Lögregla gat ekkert um málið sagt en staðfesti við mbl.is að um umsátur væri að ræða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert