Mæðgur, sem bjuggu í íbúðinni þar sem kviknaði í í Írabakka 30, voru báðar lagðar inn á gjörgæsludeild Landspítalans í morgun. Dóttirin er á batavegi og verður flutt á barnadeild síðar í dag.
Samkvæmt upplýsingum frá lækni á gjörgæslu er móðirin með brunasár og reykeitrun og er henni haldið sofandi í öndunarvél.