Enn haldið sofandi í öndunarvél

Landspítalinn í Fossvogi.
Landspítalinn í Fossvogi.

Líðan konunnar sem slasaðist í eldsvoða í Breiðholti aðfaranótt mánudags er óbreytt. Henni er haldið sofandi í öndunarvél á gjörgæslu Landspítalans í Fossvogi.

Konan, sem er á fertugsaldri, var ásamt 13 ára dóttur sinni í íbúð í Írabakka þar sem eldurinn kviknaði.

Mæðgurnar komust út við illan leik skömmu áður en slökkvilið mætti á staðinn. Konan er með brunasár og reykeitrun. Dóttir hennar var lögð inn á barnadeild Landspítalans en hún var minna slösuð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert