Það var pollrólegur fjölskyldumaður á fertugsaldri sem mætti til Íslenskrar getspár í morgun en hann er annar hinna heppnu vinningshafa sem unnu tæpar 70 milljónir í Lottóinu á laugardaginn. Vinningshafinn spilar oft með í Lottó og Lengjunni og verslar miðana sína á lotto.is.
Á föstudaginn fór hann inn á lotto.is líkt og oft áður og átti rúmlega 500 krónur inná spilareikningnum sínum. Hann valdi þrjár raðir í Lottó og veitti því athygli að hann hefði efni á að kaupa eina röð í viðbót sem hann gerði. Á þessum tímapunkti velti hann því fyrir sér að hætta við kaupin og bæta við upphæð inná reikninginn til að geta keypt 10 raða seðil í þessum risapotti. Þá mundi hann eftir að hann hafði einu sinni keypt Lengjumiða og látið ógilda hann og breytt einum leik.
Ef hann hefði ekki breytt þeim leik á Lengjumiðanum hefði hann unnið á miðann, því ákvað hann að kaupa þessar 4 raðir og það var nóg því það var einmitt fjórða röðin sem var með allar 5 tölurnar réttar. Vinningsmiðinn sem gaf þessar tæpu 70 milljónir kostaði því einungis 520 krónur og þessi staðreynd minnir okkur enn og aftur á að það þarf ekki að spila fyrir háar fjárhæðir til að vinna stórt.
Vinningshafinn var ekki í neinum vafa um hvað hann ætlaði að gera við vinninginn, foreldrar hans eru við það að missa heimili sitt og hans fyrsta verk er að bjarga þeim, segir í frétt Íslenskrar getspár.