„Klárlega er verndarflokkur rammaáætlunar einskis virði í augum umhverfisráðherrans,“ segir Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, vegna frétta af þeirri ákvörðun Sigurðar Inga Jóhannssonar, umhverfisráðherra, að mörk friðlandsins í Þjórsárverum verði dregin í kringum lónið sem þýði að hægt verði að ráðast í gerð Norðlingaölduveitu.
Katrín segir á Facebook-síðu sinni í kvöld að sú ákvörðun stangist á við svar Sigurðar Inga á Alþingi í haust við fyrirspurn hennar um stöðu friðlýsinga á svæðum og virkjanakostum í verndarflokki. Þar hafi komið fram að friðlýsing virkjanakostsins ætti að verða hluti af því stóra svæði sem til stæði að friðlýsa á miðhálendinu.
Frétt mbl.is: Mörk friðlandsins í kringum lónið