Stúlkan sem lést í umferðarslysinu á Vesturlandsvegi við Fornahvamm í Norðurárdal síðastliðinn sunnudag hét Anna Jóna Sigurbjörnsdóttir og var frá Sauðárkróki. Anna Jóna var sextán ára gömul, fædd 18. janúar 1997.
Líðan átján ára karlmanns sem slasaðist alvarlega í sama slysi er óbreytt. Hann var enn þungt haldinn í gærkvöldi og haldið sofandi í öndunarvél á gjörgæsludeild Landspítalans, að sögn læknis.