Rannsaka enn meint harðræði

Leikskóli 101 var staðsettur við Bræðraborgastíg í Reykjavík.
Leikskóli 101 var staðsettur við Bræðraborgastíg í Reykjavík. mbl.is/Rósa Braga

Rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á meintu harðræði starfsmanna leikskólans 101 er enn á lokastigi, að sögn Friðriks Smára Björgvinssonar, yfirlögregluþjóns.

Málið komst upp þegar tveir sumarstarfsmenn leikskólans sýndu Barnaverndarnefnd Reykjavíkur myndskeið þann 27. ágúst í fyrra og tilkynntu málið formlega. Einnig hefur komið fram að fjármál leikskólans væru til skoðunar hjá skattrannsóknarstjóra.

Í lokabréfi Barnaverndar til foreldra barna á leikskólanum kom fram að sýnt þætti að annmarkar hefðu verið á starfsemi ungbarnaleikskólans og að ómálga börn hefðu verið beitt harðræði.

Alls dvaldi 31 barn á leikskólanum en börnin voru 9-18 mánaða gömul. Starfsmenn leikskólans voru níu talsins. Líkt og áður hefur komið fram ákvað Hulda Linda Stefánsdóttir, eigandi Leikskólans 101, að hætta rekstri ungbarnaleikskólans.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert