Ósáttur við þorraannál og flytur úr bænum

Hannes Friðriksson.
Hannes Friðriksson. Þorvaldur Örn Kristmundsson

Hannes Friðriksson er ósáttur við þorrablótsannál Keflavíkur, sem fluttur var á þorrablóti Keflavíkur um nýliðna helgi. Í grein sem Hannes birtir í gærkvöld á vef Víkurfrétta segist hann vera útmálaður neikvæðasti maður Reykjanesbæjar ásamt Guðbrandi Einarssyni. Hann hafi í kjölfarið ákveðið að flytja úr bænum. Hannes hefur verið duglegur við að taka þátt í þjóðmálaumræðunni með greinaskrifum.

„Grín er gott í hófi en mikilvægt að hver sá sem með gamanmál fer gæti sín, því oft er það þannig að fleiri en þeir sem gert er grín að verða fyrir barðinu á því,“ skrifar Hannes í grein sinni á vf.is.

Síðar í greininni skrifar hann: „Samfélag okkar hér í Reykjanesbæ þykir mér mjög vænt um, hér býr gott og dugmikið og að langmestu leyti sanngjarnt fólk. Fyrir það hef ég viljað berjast. Og gert. Verið til í að láta ýmislegt yfir mig ganga í þeirri baráttu. En allt á sér endi. Og sá endir fann sér stað í þorraannál Íþróttabandalags Keflavíkur, þar sem þó nokkur fjöldi félaga minna var viðstaddur og ætlast til að þeir myndu hlæja að innslagi þar sem ég og Guðbrandur Einarsson vorum útmálaðir sem neikvæðustu menn Reykjanesbæjar sökum greinaskrifa okkar.“

Svo skrifar Hannes: „Ég hef því ákveðið í samráði við eiginkonu mína að svo fljótt sem verða má munum við flytja burt úr bænum um leið og við höfum sagt okkur frá öllum þeim verkefnum við höfum talið okkur vinna í almannaþágu. Um leið og ég þakka kærlega þeim fjölmörgu er stutt hafa mig í gegnum árin, þá á ég þá ósk heitasta að einhvern tíma muni hér rísa upp samfélag sem getur tekist á við gagnrýna umræðu, án þess að ráðist sé í manninn, heldur en málefnið. Fyrst þá mun Reykjanesbæ farnast vel. Takk fyrir mig“.

Hér má sjá grein Hannesar í heild

Hér má sjá myndband af þorraannálnum

Reykjanesbær.
Reykjanesbær. mbl.is/Sigurður Bogi
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert