Mörður Árnason, varaþingmaður Samfylkingarinnar, hefur lagt fram fyrirspurn á Alþingi um hvalamjöl. Kemur hún til vegna þeirrar ákvörðunar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra að heimila sölu og dreifingu á Hvalabjór, en áður hafði heilbrigðiseftirlit Vesturlands bannað framleiðsluna.
Meðal þess sem Mörður spyr ráðherra um er hvort starfsleyfi Hvals hf. nái til framleiðslu hvalamjöls til nota í matvæli og til framleiðslu kryddvöru.
Þá spyr Mörður hvers vegna talið sé að lagagrundvöllur sé „óviss“ við ákvörðun Heilbrigðiseftirlits Vesturlands, hvaða umsagnir bárust ráðuneytinu um málið frá undirstofnunum þess eða öðrum áður en ráðherra ákvað að fresta réttaráhrifum ákvörðunarinnar og að lokum hvort ráðherra hafi beðið Heilbrigðiseftirlit Vesturlands eða heilbrigðisnefnd Vesturlands að afturkalla ákvörðunina um hvalamjölið áður en ráðherra ákvað að fresta réttaráhrifum hennar.
Fréttir mbl.is um Hvalabjórinn:
Frétt mbl.is: Langþráður hvalabjór
Frétt mbl.is: Heimilar sölu á hvalabjór
Frétt mbl.is: „Ég helli bjórnum ekki“
Frétt mbl.is: Ætlar áfram að koma hvalabjór á markað
Frétt mbl.is: Hvalabjór settur á markað fyrir þorrann
Frétt mbl.is: Hvalabjór vekur athygli
Frétt mbl.is: Hvalabjór reitir útlendinga til reiði
Frétt mbl.is: Banna framleiðslu hvalabjórs