Tveggja milljarða fjárfesting

Skarphéðinn Orri Björnsson, framkvæmdastjóri Algalífs og Ragnheiður Elín Árnadóttir. iðnaðar- …
Skarphéðinn Orri Björnsson, framkvæmdastjóri Algalífs og Ragnheiður Elín Árnadóttir. iðnaðar- og viðskiptaráðherra, undirrituðu í morgun fjárfestingasamning vegna örþörungaverksmiðju. mynd/Pressphotos.biz

Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, og forsvarsmenn líftæknifyrirtækisins Algalíf Iceland ehf. skrifuðu í dag undir fjárfestingasamning vegna örþörungaverksmiðju á Ásbrú á Reykjanesi. Áætlað er að verkefnið muni kosta um tvo milljarða króna og gera áætlanir ráð fyrir að framkvæmdum verði lokið um mitt ár 2015.

Framleiðslan hefst strax á þessu ári en fullum afköstum verður náð á árinu 2016 og verða starfsmenn þá um 30 talsins. Nú þegar starfa átta manns hjá fyrirtækinu og mun þeim fjölga strax í næsta mánuði, að því er segir í tilkynningu á vef iðnaðarráðuneytisins.

Þá segir, að fjárfestingarsamningurinn við Algalíf sé gerður með þeim fyrirvara að hann komi ekki til framkvæmda fyrr en fullnægjandi lagastoðar hafi verið aflað frá Alþingi. Algalíf Iceland ehf. var stofnað í ágúst 2012 og er í eigu norska félagsins NutraQ A/S.

Algalíf nýtir 1.500 fermetra húsnæði sem þegar er til á Ásbrú, fyrrum varnarsvæðinu við Keflavíkurflugvöll, en mun að auki byggja nýtt 6.000m2 húsnæði.

„Í verksmiðjunni verða ræktaðir örþörungar sem nefnast Haematococcus Pluvialis, en úr þeim er unnið virka efnið Astaxanthin. Það er sterkt andoxunarefni sem notað er í fæðubótaefni og vítamínblöndur, auk þess að vera neytt sérstaklega í hylkjaformi. Mikill og vaxandi markaður er fyrir efnið og annar heimsframleiðslan hvergi nærri eftirspurn,“ segir í tilkynningunni. 

Nánar á vef ráðuneytisins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert