Stormur og hríð á Hellisheiði

mbl.is/Gúna

Óveðrið í Mýrdal og undir Eyjafjöllum nær hámarki nú síðdegis með vindhviðum allt að 40-45 m/s.  Stormur og hríðarveður er á Hellisheiði og í Þrengslum og vindhviður allt að 40 m/s á Kjalarnesi og undir Hafnarfjalli. Veðrið lagast mikið á milli kl. 20 og 22 í kvöld, samkvæmt upplýsingum veðurfræðings Vegagerðarinnar.

Um mestallt norðan- og austanvert land fer veður versnandi fram á kvöldið. Stormur verður og stórhríð á flestum fjallvegum fram á nóttina, en á láglendi hlánar með slyddu og rigningu, en þó ekki á Vestfjörðum fyrr en seint í kvöld.

Varað er við óveðri víða og eru einhverjir vegir bæði á Vestfjörðum og Norðurlandi orðnir ófærir. Einnig er varað við sandbyl á Skeiðarársandi og Mýrdalssandi.

Það er hálka og stórhríð á Hellisheiði en hálkublettir og skafrenningur í Þrengslum og undir Ingólfsfjalli.

Hálkublettir eru einnig á Mosfellsheiði og hálka er sumsstaðar í uppsveitum á Suðurlandi. Hálka er á Bláfjallavegi og í Kjósarskarði en flughált í Efri-Grafningi. Óveður er á Reynisfjalli og undir Eyjafjöllum.

Það er hálka eða hálkublettir á köflum á Vesturlandi, einkum á útvegum. Varað er við óveðri undir Hafnarfjalli, við Hafursfell, Vatnaleið og á Fróðárheiði.

Á Vestfjörðum er víða hvasst og skafrenningur eða ofankoma. Ófært og stórhríð er á Klettshálsi, Þröskuldum og Steingrímsfjarðarheiði og þar er ekki útlit fyrir að opnist í dag. Þæfingur er á kafla í Djúpinu.

Hálka eða snjóþekja er víðast hvar á Norðurlandi og hríðarveður. Ófært og stórhríð er á Þverárfjalli og ófært og óveður er á Öxnadalsheiði. Ófært er bæði á Hólasandi og Dettifossvegi.

Snjóþekja eða hálka er á flestum vegum á Austurlandi og sumsstaðar skafrenningur eða él. Vegur er auður frá Djúpavogi suður um en óveður í Hvalnesi og í Öræfum. Sandbylur er á Skeiðarársandi og Mýrdalssandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert