Samtökin '78 afhentu Illuga Gunnarssyni menningarmálaráðherra kveðjugjöf í dag í tilefni af för hans á Vetrarólympíuleikana í Sotsjí í Rússlandi sem hefjast í næstu viku. Hann var jafnframt hvattur til að sýna hinsegin fólki þar í landi stuðning sem hann sagðist myndu gera ef rétta tækifærið kæmi.
Samtökin höfðu áður hvatt hann til að hunsa boð um að mæta á leikana en þar sem hann væri á leiðinni væri nauðsynlegt að íslensk stjórnvöld sýndu hinsegin fólki stuðning og tækju jafnframt afstöðu gegn alvarlegum mannréttindabrotum rússneskra stjórnvalda.