Hjördís Svan Aðalheiðardóttir, forsjárlaus móðir þriggja barna, hefur verið úrskurðuð í fjögurra vikna gæsluvarðhald í Horsens í Danmörku. Áður hafði Hjördís verið sett í jafnlangt farbann í landinu á meðan mál hennar, er varðar för hennar með börn sín til Íslands síðasta sumar, er til meðferðar fyrir dómstólum.
Hjördís var handtekin hér á landi fyrir viku og flutt til Danmerkur. Það var gert á grundvelli norrænnar handtökutilskipunar og sáu danskir lögreglumenn um handtökuna og flutninginn. Ákæruvaldið í Danmörku krafðist þess að Hjördís skyldi sæta gæsluvarðhaldi, því var hafnað og var hún í staðinn sett í farbann.
Því var áfrýjað til Vestri landsréttar, sem er millidómstig í landinu.
Er Hjördís kom á lögreglustöðina í Horsens síðastliðinni mánudag til að láta vita af sér, eins og fólki í farbanni er gert að gera alla virka daga, var hún úrskurðuð í gæsluvarðhald.
Hún er nú í haldi í fangelsi skammt frá bænum Horsens.
Hjördís hefur átt í forræðisdeilu við danskan barnsföður sinn í nokkur ár, en þau eiga saman þrjár dætur. Föðurnum var dæmt fullt forræði yfir þeim árið 2012, en áður höfðu þær verið teknar af Hjördísi með lögregluvaldi og fluttar til Danmerkur.
Hún var með dætrunum í Danmörku síðasta sumar, en ákvað að skila þeim ekki til föður þeirra á tilsettum tíma, fór huldu höfði um tíma og flaug síðan með börnin hingað til lands í einkaflugvél.