Tveir lögreglumenn á slysadeild

Tveir lögreglumenn þurftu að leita sér læknishjálpar eftir að til átaka kom þegar ökumaður var stöðvaður í Árbænum eftir hádegi í dag. Maðurinn ók án ökuréttinda og er hann einnig grunaður um að hafa ekið undir áhrifum fíkniefna.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu kom til átaka þegar stóð til að handtaka manninn og gengust lögreglumennirnir tveir í kjölfarið undir lækniskoðun á slysadeild. Þeir hlutu ekki alvarleg meiðsl. Maðurinn hefur áður komið við sögu hjá lögreglu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert