Hryssu misþyrmt á kynfærum

Hestar
Hestar Árni Sæberg

Dýraníðingur virðist ganga laus á Kjalarnesi en um helgina var hryssu á Kirkjulandi misþyrmt á kynfærum með beittu eggvopni. Eigandi hryssunnar kom að henni í gærmorgun og sá skurðinn. Hann hefur tilkynnt málið til lögreglu.

Frá þessu var greint í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins. Þar segir einnig að árásin á hryssuna líkist þeim sem gerðar voru víðsvegar um landið árið 2011. Um var að ræða fimm sentímetra langan og eins sentímetra djúpan skurð við skeiðaropið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert