Framlengja gæsluvarðhald yfir Hjördísi

Ítarlegt viðtal var við Hjördísi Svan í Nýju lífi.
Ítarlegt viðtal var við Hjördísi Svan í Nýju lífi.

Gæsluvarðhald yfir Hjördísi Svan Aðalheiðardóttur, forsjárlausri móður þriggja barna, hefur verið framlengt  til 1. apríl nk. Hún hefur setið í gæsluvarðhaldi í Horsens í Danmörku frá 10. febrúar en áður hafði hún verið sett í fjögurra vikna langt farbann í landinu á meðan mál hennar, er varðar för hennar með  börn sín til Íslands síðasta sumar, er til meðferðar fyrir dómstólum.

Að sögn Lars Peters Madsens, aðstoðaryfirlögregluþjóns í Horsens í Danmörku, stendur rannsókn málsins enn yfir. Hjördísi er gefið að sök að hafa flutt þrjár dætur sínar frá Danmörku til Íslands án þess að hafa til þess leyfi föður stúlknanna, en hann hefur forræði yfir þeim.

Í skriflegu svari til mbl.is segir Lars að Hjördís verði ákærð vegna brots á 215. grein danskra hegningarlaga. Greinin snýr að því þegar einstaklingur, í þessu tilviki Hjördís, tekur barn af réttmætum foreldrum sínum eða forsjáraðila. Verður hún einnig ákærð fyrir brot á annarri milligrein 215. greinar, en hún snýr að því þegar manneskja tekur barn undir 18 ára aldri ólöglega með sér til annars lands.

Lars segir að Hjördís sitji í gæsluvarðhaldi þar sem lögregla óttist að hún muni fara aftur til Íslands þrátt fyrir farbann. Ekki er vitað hvenær réttarhöld fara fram í málinu. Hámarksrefsing fyrir brot af þessu tagi er fjögur ár.

Hjördís var handtekin hér á landi í febrúar og flutt til Danmerkur. Það var gert á grundvelli norrænnar handtökutilskipunar og sáu danskir lögreglumenn um handtökuna og flutninginn. Ákæruvaldið í Danmörku krafðist þess að Hjördís skyldi sæta gæsluvarðhaldi, því var hafnað og var hún í staðinn sett í farbann.

Því var áfrýjað til Vestri landsréttar, sem er millidómstig í landinu. Er Hjördís kom á lögreglustöðina í Horsens síðastliðinn mánudag til að láta vita af sér, eins og fólki í farbanni er gert að gera alla virka daga, var hún úrskurðuð í gæsluvarðhald. Hún er nú í haldi í fangelsi skammt frá bænum Horsens.

Hjördís hefur átt í forræðisdeilu við danskan barnsföður sinn í nokkur ár, en þau eiga saman þrjár dætur. Föðurnum var dæmt fullt forræði yfir þeim árið 2012, en áður höfðu þær verið teknar af Hjördísi með lögregluvaldi og fluttar til Danmerkur.

Hún var með dætrunum í Danmörku síðasta sumar, en ákvað að skila þeim ekki til föður þeirra á tilsettum tíma, fór huldu höfði um tíma og flaug síðan með börnin hingað til lands í einkaflugvél.

Frétt mbl.is: Hjördís Svan í fjögurra vikna gæsluvarðhald.
Frétt mbl.is: Hjördís í fjögurra vikna farbann. 
Frétt mbl.is: Hjördís Svan handtekin og flutt úr landi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert