Fjármálafyrirtækið Lýsing er að ganga frá kaupum á eignaleigufyrirtækinu Lykli sem er hluti af MP banka.
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins verður skrifað undir kaupsamning á allra næstu dögum.
Við kaupin mun Lýsing taka yfir meira en tvö þúsund bílasamninga, bílalán og kaupleigusamninga vegna ýmissa atvinnutækja.