Fleiri bifhjólamenn slösuðust alvarlega í umferðinni í fyrra en árið 2012. Árið 2012 slösuðust sautján alvarlega og enginn lét lífið. Í fyrra slösuðust 25 alvarlega og einn lét lífið. Árið 2013 er þó undir 5 ára meðaltali áranna á undan en það eru 30 alvarlega slasaðir, samkvæmt tölum Samgöngustofu.
Nú er að renna upp sá tími ársins þegar bifhjólamenn draga fram reiðskjóta sína og renna af stað á vit þeirra ævintýra og ánægju sem fylgir slíkum ferðamáta. Það er mikilvægt að bílstjórar og aðrir vegfarendur hafi það í huga að bifhjólamenn eru stór hluti vegfarenda og það getur reynst erfitt að greina fjarlægð þeirra og hraða. Það getur því borgað sig að gá að minnsta kosti tvisvar áður en bíl er ekið yfir gatnamót eða inn á veg. Samgöngustofa vill árétta mikilvægi þess að bifhjólamenn skerpi á og rifji upp ákveðin mikilvæg atriði áður en lagt er af stað.
Mælt er með því að menn taki upprifjunartíma hjá ökukennara áður en lagt er af stað eftir langt hlé, segir í frétt Samgöngustofu.