Svandís hreiðar um sig í hólmanum

Svandís ásamt maka sínum í hólmanum í Bakkatjörn í dag.
Svandís ásamt maka sínum í hólmanum í Bakkatjörn í dag. mbl.is/Björn Ingvarsson

Álftin Svandís er farin að gera sér hreiður í hólmanum í Bakkatjörn líkt og sést á meðfylgjandi ljósmynd sem var tekin í dag. Svandís horfir til lands á meðan maki hennar vinnur að hreiðurgerðinni. 

Svandís hefur verpt undanfarin ár í hólmanum í Bakkatjörn, en Svandís er auðþekkt af nefmynstri sínu að sögn ljósmyndarans Björns Ingvarssonar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert