Kim Laursen, danskur barnsfaðir Hjördísar Svan Aðalheiðardóttur, mun fá dætur þeirra þrjár afhentar eftir sex vikur. Þetta staðfesti héraðsdómur Reykjavíkur sl. föstudag. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í morgun.
Kim og Hjördís hafa átt í áralangri forræðisdeilu vegna stúlknanna sem Kim hefur nú löglega forsjá yfir, en Hjördís hefur setið í gæsluvarðhaldi í Horsens frá 10. febrúar sl. fyrir ólöglegt brottnám á börnunum frá Danmörku til Íslands síðastliðið sumar. Réttarhöld í málinu hefjast þann 26. apríl nk.
Í frétt Fréttablaðsins kemur fram að lögmaður Laursens hafi lagt fram kröfu um að hann fengi dæturnar um miðjan mars sl.
Frétt mbl.is: Réttað yfir Hjördísi Svan 26. apríl.