„Saman erum við hinn fullkomni bardagapakki og við ætlum að sigra Gunnar Nelson á föstudaginn,“ segir Sveinn Jóhannesson Kjarval, þjálfari tíu manna liðs bardagamanna sem mun takast á við Gunnar Nelson í Eldborgarsal Hörpu kl. 20 á föstudag.
Gunnar er sjálfur pollrólegur og segir stefna í góða þolæfingu en liðið er m.a. skipað Pétri Eyþórssyni glímukóngi Íslands og Vigni Grétari Stefánssyni margföldum Íslandsmeistara í júdó.
mbl.is hitti Gunnar og andstæðingana í Mjölni.
Hægt verður að fylgjast með viðburðinum, sem er hluti af fanfesti EVE, í beinni útsendingu á vefnum. www.twitch.tv/ccp