Tveir fengu fyrsta vinning

Pottur kvöldsins var sjöfaldur.
Pottur kvöldsins var sjöfaldur. mbl.is

Tveir skiptu með sér sjöföldum lottópotti í útdrætti kvöldsins og fær hvor rúmlega 42 milljónir í vinning.

Annar vinningsmiðinn var keyptur hjá Olís, Norðlingabraut 7 í Reykjavík og hinn í Ísgrilli, Bústaðavegi 130, Reykjavík.

Tveir voru með bónusvinninginn og hlýtur hvor þeirra 541.410 kr. Miðarnir voru keyptir í Hagkaup í Garðabæ og Shellskálanum í Sandgerði.

Sex voru með fjórar réttar tölur í réttri röð í Jókernum og fá þeir 100.000 kr. í vinning. Miðarnir voru keyptir á eftirtöldum stöðum: Select, Hagasmára 9 í Kópavogi, Söluturninum Hraunbergi 4 í Reykjavík, Snælandi, Furugrund 3, Kópavogi, Samkaupum-úrval á Grundarfirði, Fitjavík í Reykjanesbæ og einn miðinn er í áskrift.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert