Forsvarsmenn Sambíóanna biðjast afsökunar á reglu um kynbundna verkaskiptingu sem innleidd var af vaktstjóra á innra spjallsvæði starfsmanna. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem Sambíóin hafa sent frá sér, en þar segir að reglan hafi verið sett án vitneskju framkvæmdastjóra.
Segir jafnframt í tilkynningunni að engin störf innan bíósins séu kynbundin og að starfsmenn hafi í gegnum tíðina gengið í öll almenn störf óháð kyni.
Fréttatilkynningin er svohljóðandi:
„Fyrir skömmu gerði vaktstjóri í bíóinu mistök þegar hann innleiddi á spjallsvæði starfsmanna, án vitneskju framkvæmdastjóra, reglu um kynbundna verkaskiptingu í annarri sjoppu bíósins. Þessi regla er ekki í gildi hjá bíóinu enda samræmist hún ekki áherslum fyrirtækisins.
Stjórnendur bíósins biðjast afsökunar á þessum mistökum og munu á næstu dögum fara yfir alla verkferla innan bíóhúsanna til að tryggja eins og kostur er að jafnræði ríki meðal starfsmanna fyrirtækisins.
Sambíóin, sem rekið hafa kvikmyndahús í 42 ár, hafa frá upphafi lagt áherslu á gott starfsumhverfi sem er mikilvæg forsenda fyrir jákvæðri upplifun bíógesta.
F.h. Sambíóanna,
Alfreð Ásberg Árnason,
framkvæmdastjóri Sambíóanna.“
Tjáir sig ekki um starfsmenn
Eins og fram kom á mbl.is var tveimur kvenkyns starfsmönnum fyrirtækisins sagt upp eftir að hafa haft sig frammi í jafnréttisumræðu á Facebook um kynjaskiptingu verkefna í vinnunni.
Alfreð Ásberg Árnason, framkvæmdastjóri Sambíóanna, vildi aðspurður ekki tjá sig um það hvort strarfsmönnunum yrði boðið starf að nýju.
Sjá einnig: Sambíóin eyddu athugasemdum
Sagt upp eftir jafnréttisumræðu