Stjórnendur Landspítala hafa tekið við ákæru ríkissaksóknara á hendur spítalanum og starfsmanni á gjörgæsludeild spítalans, vegna atviks á árinu 2012, þar sem maður lést. Landspítali harmar að þetta atvik hafi átt sér stað og hugur stjórnenda spítalans er hjá aðstandendum mannsins.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landspítalanum.
Rík umræða hefur átt sér stað innan heilbrigðisþjónustunnar á síðustu árum um mikilvægi þess að auka öryggi sjúklinga með opinni umræðu, markvissri skráningu atvika og umbótum í kjölfar þeirra, segir í tilkynningu spítalans. „Hið mikilvægasta þegar slíkir atburðir eiga sér stað er að draga af þeim lærdóm til að fyrirbyggja að sambærileg atvik geti átt sér stað í framtíðinni.“
Þetta er í fyrsta sinn sem Landspítali og starfsmaður hans eru ákærð fyrir atvik af þessu tagi og stendur íslensk heilbrigðisþjónusta á krossgötum, segir ennfremur í tilkynningunni. „Það er nýr veruleiki fyrir bæði starfsmenn og stofnunina að standa frammi fyrir því í störfum sínum að atvik sem þessi fari í farveg refsimáls sem rekið er fyrir dómstólum. Þetta eru straumhvörf sem skapa óvissu í störfum heilbrigðisstarfsmanna.“
Landspítali mun á næstu dögum fara frekar yfir efni ákærunnar með lögmönnum sínum.
Frétt mbl.is: Rannsókn lokið á andláti manns