„Við höfum fengið gríðarlega mikil viðbrögð við þessu,“ segir Gauti Jóhannesson sveitarstjóri Djúpavogshrepps um myndbandið sem sveitarfélagið sýndi á veraldarvefnum í gær. Myndbandið var gert í samstarfi við Afl starfsgreinafélag til þess að vekja fólk til umhugsunar um stöðu sveitarfélagsins. „Ég hef fengið fjölda pósta og símhringinga í allan morgun og sama á við um oddvita sveitarstjórnar. Skilaboðin eru öll á einn veg en fólk er að lýsa yfir stuðningi við okkur og okkar málstað.“
Mikil umræða hefur verið undanfarið um Djúpavog og stöðu sveitafélagsins eftir að útgerðafyrirtækið Vísir ákvað að hætta starfsemi sinni á staðnum sem hefur miklar afleiðingar á samfélagið á Djúpavogi. Myndbandinu er beint að stjórnvöldum en samkvæmt Gauta hefur ekkert heyrst frá þeim eða öðrum þingmönnum í kjölfar birtingarinnar. „Nei, við höfum ekki heyrt bofs frá þingmönnum en við bíðum spennt.“
Í síðustu viku afhenti Kristján Ingimarsson, íbúi á Djúpavogi, Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, forsætisráðherra, undirskriftir 150 íbúa Djúpavogs þar sem stjórnvöld eru hvött til þess að treysta byggð í bæjarfélaginu. Á fundi þeirra að afhendingunni lokinni sagðist Sigmundur fylgjast vel með stöðunni og að hann muni heimsækja bæjarfélagið eftir að þingi lýkur.
Samkvæmt Gauta er ekki vitað hvenær er von á forsætisráðherra. „Hann sagðist ætla að koma eftir þinglok þannig að núna bíðum við bara.“
Að sögn Gauta er mikill hugur í íbúum Djúpavogs. „Það er algjör samstaða á meðal íbúanna um að við ætlum ekki að láta þetta fara neitt með okkur. Ég vona að það hafi komið fram í myndbandinu. Við ætlum að standa í lappirnar þar til annað er ekki hægt.“